F.I.V.E.R.
← Öll fréttabréf

Fréttabréf #3 – Loksins er er þetta byrjað

Vika 1 er búin!
Eftir margra mánaða bið er þetta loksins byrjað! Eins og öll ár, þá byrja fyrstu 3 vikurnar á innbyrðis viðureignum í riðlunum. Lítið um tæpa leiki eða óvænt úrslit.

Vika 1 - Bónusar vikunnar

Stigahæsta liðið

124.38 stig
Siggi

Eftir gott rebuild heldur Siggi áfram

Skilvirkasti stjórinn

98.4%
Krissi

Þrátt fyrir tap, þá var lítið við því að gera þar sem Krissi stillti nánast upp fullkomnu liði

Vika 1 - Niðurstöður

Siggi
142.38 (94.2%)
VS
Goggi
91.52 (84.1%)
Siggi heldur áfram uppteknum hætti frá seinasta ári og byrjar á sigri. Solid frammistaða hjá öllum leikmönnum í liðinu, með Bijan og Hurts í fararbroddi. Goggi sofnaði aðeins á verðinum eða hafði fulla trú á lækninum hans Godwin. Mahomes hefur verið að spila vel seinustu ár, en það hefur ekki verið að skila sér í fantasy stigum, en fyrsti leikurinn lofar góðu í ár. WR staðan er áhyggjuefni, en þetta er þó bara fyrsta vikan!
Alli
109.16 (88.8%)
VS
Krissi
92.06 (98.4%)
Hver þarf grípara með þessa hlaupara ásamt Josh Allen? Ekki Alli. Skrítið samt að spila ekki Calvin Austin í staðin fyrir A.J. Brown. Þrátt fyrir að Krissi hafi verið í efri hlutanum í viku 1, þá er áhyggjuefni hvað flest stigin dreifast á fáa leikmenn.
Andri
70.62 (75.8%)
VS
Stebbi
100.20 (83.3%)
Andri á sínu 2. ári í rebuildinu byrjaði með 4 nýliða. Ashton Jeanty var þó eini af þeim skilaði einhverjum stigum. Það voru hins vegar 2. árs leikmennirnar sem héldu uppi stigunum. Hjá Stebba er Derrick Henry bara Derrick Henry. Stebbi nældi í Emeka Egbuka seint í fyrstu umferð nýliðavalsins og eftir fyrstu viku þá lítur það út fyrir að vera besta valið í nýliðavalinu. Auðveldur sigur hjá Stebba.
Hólmar
99.72 (73.0%)
VS
Einar
75.12.3 (76.4%)
Liðið hjá Hólmari hefur sjaldan litið jafn vel út, og með mikla breidd. Í riðli þar sem 2 lið eru að tanka, ætti hann að komast í úrslitakeppnina í ár. Einar hins vegar leist ekkert á það sem hann sá hjá sínum leikmönnum og er strax byrjaður að hugsa um næsta ár. Honum til varnaðar, þá tók hann við skelfilegu búi.
Gylfi
53.42 (55.9%)
VS
Haffi
79.74 (59.5%)
Daprasti leikur vikunnar. Gylfi fékk ekki memo'ið að Burrow er alltaf ömurlegur í fyrstu vikunni. Kannski erfitt að dæma ákvarðanirnar en Gylfi var með nóg stig á bekknum til að vinna leikinn. Haffi bjóst líklega ekki við því að Daniel Jones myndi berjast um sæti í byrjunarliðinu í ár, en hér erum við. Þrátt fyrir að vera í neðri hlutanum í viku 1, þá er Haffi til alls líklegur í ár.
Sölvi
76.66 (79.0%)
VS
Bogi
61.82 (64.3%)
Það getur ekki verið góð tilfinning að hafa valið rangan QB í byrjunarliðið, hvað þá þegar rétti QB'inn var með 5.4 stig. Það jákvæða er hins vegar að stjörnurnar spiluðu flestar vel og Travis Etienne hefur bolað Tank Bigsby úr Jacksonville. 51 stig (Justin Fields og Quentin Johnston) á bekknum hefðu heldur betur nýst í staðin fyrir Jordan Love og Isiah Pacheco, en Bogi er pottþétt ekkert að hugsa um það.

Vika 2 - Viðureignir

Siggi vs Krissi
Siggi: 3 sigrar í röð
H2H fyrri mætingar: Siggi 6-12 Krissi
Síðasta mæting: Siggi vann 91.46-86.78 (2024)
Spá: Siggi ætti að klára þetta þokkalega auðveldlega
Goggi vs Alli
Goggi: 1 sigur í röð
H2H fyrri mætingar: Goggi 3-9 Alli
Síðasta mæting: Goggi vann 91.96-86.66 (2024)
Spá: Þrátt fyrir að Goggi hafi unnið seinustu viðureignina, þá ætti Alli að taka þetta.
Stebbi vs Hólmar
Hólmar: 1 sigur í röð
H2H fyrri mætingar: Stebbi 12-6 Hólmar
Síðasta mæting: Hólmar vann 52.68-73.70 (2024)
Spá: Báðir fengu auðvelda sigra í fyrstu umferð, en þetta ætti að vera meira spennandi. Ég spái að Hólmar vinni sinn annan sigur í Stebba í röð og taki forystu í riðlinum.
Einar vs Andri
H2H fyrri mætingar: Engar fyrri mætingar
Nýr stjóri: Þetta er fyrsta tímabilið hans Einars, svo það eru engir leikir til að byggja tölfræði á.
Spá: 2 lið í tanking ham. Bæði lið vilja tapa, en ég spái að Andri taki þetta.
Bogi vs Haffi
Haffi: 1 sigur í röð
H2H fyrri mætingar: Bogi 3-9 Haffi
Síðasta mæting: Haffi vann 124.78-99.06 (2024)
Spá: Haffi getur komist í 2-0, en ég spái því að bæði lið byrji 1-1.
Sölvi vs Gylfi
Sölvi: 2 sigrar í röð
H2H fyrri mætingar: Sölvi 7-3 Gylfi
Síðasta mæting: Sölvi vann 105.5-79.5 (2024)
Spá: Ég spái að Gylfi endi sigurgöngu Sölva og jafni hann að stigum.

NFL Tippleikurinn

Vika 1 - Niðurstöður tippleiksins
Flestir byrjuðu tippleikinn vel! Andri og Einar eru efstir með 10/16 rétta, Stebbi þar á eftir með 9. Haffi er á botninum með 6 rétta. Restin var með 8 rétta.
Staða Stjóri Rétt
Staða:1. Stjóri:Einar Rétt:10
Staða:1. Stjóri:Andri Rétt:10
Staða:3. Stjóri:Stebbi Rétt:9
Staða:4. Stjóri:Siggi Rétt:8
Staða:4. Stjóri:Bogi Rétt:8
Staða:4. Stjóri:Alli Rétt:8
Staða:4. Stjóri:Goggi Rétt:8
Staða:4. Stjóri:Gylfi Rétt:8
Staða:4. Stjóri:Hólmar Rétt:8
Staða:4. Stjóri:Krissi Rétt:8
Staða:4. Stjóri:Sölvi Rétt:8
Staða:12. Stjóri:Haffi Rétt:6