F.I.V.E.R.
← Öll fréttabréf

Fréttabréf #5 – Boginn spenntur

Vika 3
Innbyrðis riðla leikirnir búnir með 3 taplaus lið og 3 ósigruð lið. Bogi stigahæstur 2 vikur í röð og þetta lítur út eins og er fyrir að vera þrískipt deild með allt að 6 liðum sem eru líkleg til árangurs.

Vika 3 - Bónusar vikunnar

Stigahæsta liðið

103.22 stig
Bogi

Skilvirkasti stjórinn

90.6%
Haffi

Vika 3 - Niðurstöður

Alli
102.82
VS
Siggi
101.84
Úff, óheppnin eltir Sigga, tap með minna en 1 stigi og er minna en 2 stigum frá því að vera stigahæstur í vikunni. Kyren Williams öskrandi á stjórann sinn af bekknum. Þrátt fyrir góða viku hjá Alla þá missir hann Mike Evans í nokkrar vikur og James Conner út árið. Ekki víst að David Montgomery muni eiga annan leik eins og í þessari viku, en það er það sem Alli mun hins vegar binda vonir við.
Krissi
99.52
VS
Goggi
60.46
Enginn steig upp hjá Gogga í vikunni. Farið að líta út eins og erfitt tímabil fyrir hann. Krissi fór all in á Giants hlauparana því hann hefur verið viss um að annar þeirra myndi allavegans skila stigum. Tracy meiddist á meðan Skattebo leit mjög vel út. Þrátt fyrir að vera 2-1 þá gæti takmörkuð breidd hans hjá hlaupurunum orðið honum að falli. Ekki í fyrsta skipti.
Stebbi
83.66
VS
Einar
61.94
Þægilegur sigur hjá Stebba. Flest allir í liðinu með 10-15 stig. Ef hann sleppur við meiðsli mun liðið berjast um sæti í úrslitakeppninni. Projectið hans Einars er í fullu fjöri, þó slæmt að missa Najee Harris út tímabilið. Meira að segja spurning hvort hann muni eitthvað spila aftur.
Hólmar
87.00
VS
Andri
77.08
Skuggalega jafn leikur miðað við 0-3 lið á móti 3-0 liði. Hólmar hefur fundið lykt af titlinum og er búinn að setja pick á trade blockið sitt! Hann setur stefnuna á úrslitakeppnina.
Bogi
103.22
VS
Gylfi
84.02
Með byrjunarlið eins og þetta hjá Boga er alltaf líklegt að einhver springi út og vinni vikuna fyrir hann. Þrátt fyrir 2 vikur í röð sem stigahæsta liðið, þá gæti hann þurft betri QB til að sigla titlinum heim. Gylfi seldi sinn besta mann, en fékk þó breidd til baka ásamt valrétt í fyrst umferð nýliðavalsins á næsta ári.
Sölvi
93.94
VS
Haffi
91.02
Haffi hefði getað jafnað þennan riðil D.J. Moore í byrjunarliðinu, en endaði á að tapa fyrir Sölva, sem kemur honum í 3-0 í riðlinum. Hann mun líka missa CeeDee Lamb í nokkrar vikur og er ekki með mikla breidd á bekknum. Þessi riðill er galopinn!

Vika 4 - Viðureignir

Sölvi vs Einar
H2H fyrri mætingar: Engar fyrri mætingar
Nýr stjóri: Þetta er fyrsta tímabilið hans Einars, svo það eru engir leikir til að byggja tölfræði á.
Spá: Sölvi ætti að taka þetta þokkalega auðveldlega.
Stebbi vs Siggi
Stebbi: 1 sigur í röð
H2H fyrri mætingar: Stebbi 6-2 Siggi
Síðasta mæting: Stebbi vann 116.66-107.24
Spá:Núna hlýtur heppnin að fara að snúast í hag Sigga. Spái honum sigri í þessari viku.
Bogi vs Hólmar
Bogi: 2 sigrar í röð
H2H fyrri mætingar: Bogi 5-4 Hólmar
Síðasta mæting: Bogi vann 92.04-84.3
Spá: Heitasta liðið í dag tekur á móti ósigruðu liði Hólmars. Ég spái að Bogi bindi enda á sigurgöngu Hólmars og nái sínum 3. sigri í röð á hann.
Goggi vs Andri
Goggi: 2 sigrar í röð
H2H fyrri mætingar: Jafnt 3-3
Síðasta mæting: Goggi vann 85.58-38.4
Spá: Bæði liðin að leita að sínum fyrsta sigri í ár. Goggi ætti að taka sinn 3. sigur í röð á móti Andra. Ef ekki, þá þarf Goggi virkilega að fara að endurskoða liðið sitt.
Haffi vs Krissi
Krissi: 2 sigrar í röð
H2H fyrri mætingar: Krissi 3-1 Haffi
Síðasta mæting: Krissi vann 99.26-87.2
Spá: Þrátt fyrir að Haffi hafi verið skilvirkasti stjóri vikunnar, þá er það sérgreinin hans Krissa. Ég spái því að Krissi vinni þetta.
Alli vs Gylfi
Gylfi: 1 sigur í röð
H2H fyrri mætingar: Alli 7-1 Gylfi
Síðasta mæting: Gylfi vann 99.08-98.4
Spá: Fyrir seinustu viðureign hafði Alli unnið alla 7 leiki þeirra. Gylfi bætti aðeins í breiddi á kostnað stórstjörnu og er að leita að sínum fyrsta sigra og mætir 3-0 liði Alla. Ég held að þetta sé of stór biti fyrir Gylfa að kyngja og spái því að Alli verði áfram taplaus.

Power Rankings

Sæti Stjóri Breyting
Sæti:1. Stjóri:Alli Breyting:
Sæti:2. Stjóri:Bogi Breyting:
Sæti:3. Stjóri:Krissi Breyting:
Sæti:4. Stjóri:Sölvi Breyting:
Sæti:5. Stjóri:Siggi Breyting:
Sæti:6. Stjóri:Hólmar Breyting:
Sæti:7. Stjóri:Stebbi Breyting:
Sæti:8. Stjóri:Haffi Breyting:
Sæti:9. Stjóri:Goggi Breyting:
Sæti:10. Stjóri:Gylfi Breyting:↑ 1
Sæti:11. Stjóri:Einar Breyting:↓ 1
Sæti:12. Stjóri:Andri Breyting:

NFL Tippleikurinn

Vika 3 - Niðurstöður tippleiksins
Ekki jafn góð vika og seinast, en Alli og Sölvi voru bestir með 9 rétta. Stebbi hefur misskilið eitthvað og fékk bara 3 rétt!? Restin var með 6-8 rétta. 6-8 rétta.
Staða Stjóri Vika 1 Vika 2 Vika 3 Samtals
Staða:1. Stjóri:Andri Vika 1:10 Vika 2:13 Vika 3:8 Samtals:31
Staða:1. Stjóri:Einar Vika 1:10 Vika 2:14 Vika 3:7 Samtals:31
Staða:3. Stjóri:Bogi Vika 1:8 Vika 2:12 Vika 3:8 Samtals:28
Staða:4. Stjóri:Siggi Vika 1:8 Vika 2:11 Vika 3:8 Samtals:27
Staða:5. Stjóri:Krissi Vika 1:8 Vika 2:10 Vika 3:8 Samtals:26
Staða:6. Stjóri:Alli Vika 1:8 Vika 2:8 Vika 3:9 Samtals:25
Staða:6. Stjóri:Sölvi Vika 1:8 Vika 2:8 Vika 3:9 Samtals:25
Staða:6. Stjóri:Gylfi Vika 1:8 Vika 2:9 Vika 3:8 Samtals:25
Staða:9. Stjóri:Hólmar Vika 1:8 Vika 2:8 Vika 3:8 Samtals:24
Staða:10. Stjóri:Haffi Vika 1:6 Vika 2:11 Vika 3:6 Samtals:23
Staða:11. Stjóri:Goggi Vika 1:8 Vika 2:7 Vika 3:6 Samtals:21
Staða:12. Stjóri:Stebbi Vika 1:9 Vika 2:8 Vika 3:3 Samtals:20