F.I.V.E.R.
← Öll fréttabréf

Fréttabréf #7 – Krissi minnir á sig

Vika 5
Seinasta taplausa liðið, Alli, féll loksins í þessari viku. En við erum ennþá með 2 lið sem eru að leita að sínum fyrsta sigri. Einnig er enginn riðill sem ber af eftir 2 vikur af leikjum á milli riðla. Allir riðlar eru með 10 sigra samtals. Þessi vika var annars frekar hefðbundin að því leit að efstu 6 liðin unnu sína leiki, enginn var "óheppinn" með matchup.

Vika 5 - Bónusar vikunnar

Stigahæsta liðið

145.24 stig
Krissi

Skilvirkasti stjórinn

94.6%
Einar

Vika 5 - Niðurstöður

Hólmar
119.84
VS
Sölvi
91.74
Hólmar sækir hér sterkan sigur gegn Sölva og bindur enda á 4 leikja sigurgöngu hjá Sölva gegn honum, en hann missir reyndar uppáhalds nýliðann sinn á IR. Hann er þó með einhverja varamenn á bekknum sem gæti stigið upp næstu vikurnar. Sölvi hefur mögulega aðeins verið að over-achieve'a hingað til og næstu vikur gætu verið brekka.
Stebbi
101.00
VS
Goggi
96.02
Það gengur ekkert upp hjá Gogga greyinu, hvað er eiginlega til ráða? Stebbi virðist hafa dottið í lukkupottinn með sinn valrétt í nýliðavalinu á Egbuka, með næstum því jafn mörg stig og næstu 2 leikmennirnir í liðinu hans.
Bogi
122.82
VS
Einar
93.38
Ja'Marr Chase er mættur aftur, hver þarf Burrow? Jonathan Taylor doing Jonathan Taylor things. Ég hélt að Einar væri að tanka, en það er nú eitthvað líf í hans mönnum. Spunring hvort það eina sem þeir séu að gera er að gefa honum verra pick á næsta ári?
Haffi
121.58
VS
Alli
81.94
Alli tapar hér sínum fyrsta leik á tímabilinu þrátt fyrir að nýi maðurinn hans, Waddle, átti sinn besta leik í nokkur ár. Það munar helling þegar Bills mennirnar hans fá færri stig saman en Bill Croskey! Haffi hafði alltaf trú á sínum manni, Bill. Sturluð staðreynd um CMC, þá er hann með 3. flest grip af öllum í deildinni (öllum WRs og TEs meðtöldum).
Krissi
145.24
VS
Gylfi
97.06
Krissi vinnur sinn 8. sigur í röð á Gylfa og það í stærsta sigri vikunnar. Ár eftir ár nær Krissi að sjóða saman einhverja súpu af RBs sem skila honum stigum. Auðvitað var það Rico Dowdle sem leiddi liðið í vikunni. Það gengur hins vegar ekkert upp hjá Gylfa, sem reyndi þó með stóru trade'i. Og fékk líka fullt af stigum út úr Kyren Williams, en það dugði ekki til.
Siggi
97.14
VS
Andri
81.28
Óþægilega tæpur sigur hjá Sigga hér. En það er fínt að eiga slaka viku gegn Andra. Hann fær líka Falcons mennina sína til baka úr Bye fyrir næstu viku.

Vika 6 - Viðureignir

Bogi vs Stebbi
Bogi: 2 sigrar í röð
H2H fyrri mætingar: Stebbi 5-4 Bogi
Síðasta mæting: Bogi vann 127.26-91.10
Spá: Bogi vinnur sinn 3. sigur í röð gegn Stebba.
Andri vs Sölvi
Sölvi: 1 sigur í röð
H2H fyrri mætingar: Andri 4-2 Sölvi
Síðasta mæting: Sölvi vann 117.22-84.94
Spá: Smá bye vesen á Sölva ásamt meiðslum, svo ég spái Andra sigri hérna.
Gylfi vs Goggi
Gylfi: 1 sigur í röð
H2H fyrri mætingar: Jafnt 3-3
Síðasta mæting: Gylfi vann 93.18-76.04
Spá: Einu 2 sigurlausu liðin mætast hér, svo það verður pottþétt bara eitt sigurlaust lið eftir. Gylfi er búinn að vera frekar óheppinn fyrstu vikurnar, en ég held að þetta verði vikan sem allt gengur upp hjá honum.
Siggi vs Haffi
Siggi: 2 sigrar í röð
H2H fyrri mætingar: Jafnt 3-3
Síðasta mæting: Siggi vann 129.7-102.94
Spá: Leikur vikunnar hér. 2 lið á siglingu og hafa unnið sitthvora 3 leikina í sínum viðureignum. Ég spái Sigga sigri hér og kemur sér mögulega á toppinn í riðlinum sínum.
Alli vs Einar
H2H fyrri mætingar: Engar fyrri mætingar
Nýr stjóri: Þetta er fyrsta tímabilið hans Einars, svo það eru engir leikir til að byggja tölfræði á.
Spá: Alli ætti að taka þetta auðveldlega, en ég spái því að Einar verði þó nálægt sigri hér!
Hólmar vs Krissi
Hólmar: 6 sigrar í röð
H2H fyrri mætingar: Hólmar 6-3 Krissi
Síðasta mæting: Hólmar vann 88.04-70.88
Spá: Eftir að hafa tapað fyrstu 3 leikjunum gegn Krissa, þá hefur Hólmar unnið síðustu 6 viðureignir og ég spái því að 7. komi í þessari viku. Það verður þó tæpt!

Power Rankings

Sæti Stjóri Breyting
Sæti:1. Stjóri:Krissi Breyting:
Sæti:2. Stjóri:Bogi Breyting:
Sæti:3. Stjóri:Siggi Breyting:
Sæti:4. Stjóri:Haffi Breyting:
Sæti:5. Stjóri:Hólmar Breyting:↑ 1
Sæti:6. Stjóri:Alli Breyting:↓ 1
Sæti:7. Stjóri:Sölvi Breyting:
Sæti:8. Stjóri:Stebbi Breyting:
Sæti:9. Stjóri:Einar Breyting:
Sæti:10. Stjóri:Goggi Breyting:
Sæti:11. Stjóri:Gylfi Breyting:
Sæti:12. Stjóri:Andri Breyting:

NFL Tippleikurinn

Vika 5 - Niðurstöður tippleiksins
Goggi átti virkilega góða viku, með 11 af 14 rétta. Krissi og Siggi koma sér í toppsætin með 10 og 9 rétta. Gylfi átti líka góða viku og var með 10 rétta. Einar skilaði ekki inn giski, en heldur sér samt sem áður í 4. sæti ásamt Haffa. Sölvi virðist vera búinn að klukka sig út úr þessum leik eftir góða byrjun. Bogi var annars neðstur með 3 rétta, restin var með milli 5 og 8 rétta.
Staða Stjóri Vika 1 Vika 2 Vika 3 Vika 4 Vika 5 Samtals
Staða:1. Stjóri:Siggi Vika 1:8 Vika 2:11 Vika 3:8 Vika 4:6 Vika 5:9 Samtals:42
Staða:1. Stjóri:Krissi Vika 1:8 Vika 2:10 Vika 3:8 Vika 4:6 Vika 5:10 Samtals:42
Staða:3. Stjóri:Gylfi Vika 1:8 Vika 2:9 Vika 3:8 Vika 4:6 Vika 5:10 Samtals:41
Staða:4. Stjóri:Einar Vika 1:10 Vika 2:14 Vika 3:7 Vika 4:9 Vika 5:0 Samtals:40
Staða:4. Stjóri:Haffi Vika 1:6 Vika 2:11 Vika 3:6 Vika 4:9 Vika 5:8 Samtals:40
Staða:6. Stjóri:Bogi Vika 1:8 Vika 2:12 Vika 3:8 Vika 4:8 Vika 5:3 Samtals:39
Staða:6. Stjóri:Alli Vika 1:8 Vika 2:8 Vika 3:9 Vika 4:9 Vika 5:5 Samtals:39
Staða:6. Stjóri:Andri Vika 1:10 Vika 2:13 Vika 3:8 Vika 4:2 Vika 5:6 Samtals:39
Staða:6. Stjóri:Goggi Vika 1:8 Vika 2:7 Vika 3:6 Vika 4:7 Vika 5:11 Samtals:39
Staða:10. Stjóri:Stebbi Vika 1:9 Vika 2:8 Vika 3:3 Vika 4:8 Vika 5:7 Samtals:35
Staða:11. Stjóri:Hólmar Vika 1:8 Vika 2:8 Vika 3:8 Vika 4:4 Vika 5:6 Samtals:34
Staða:12. Stjóri:Sölvi Vika 1:8 Vika 2:8 Vika 3:9 Vika 4:0 Vika 5:0 Samtals:25